Kaja Þrastardóttir fæddist í Reykjavík, Íslandi 13. Júní 1964. Hún býr með Edwin Benediktssyni og á með honum tvær dætur, Andreu Diljá 20 ára og Halldóru Líf 13 ára.
Hún hefur stundað ljósmyndun með hléum allt frá árinu 1983. Ljósmyndaáhuginn byrjaði í menntaskóla þar sem hún fór á námskeið og byrjaði að taka myndir með fjörgamalli myndavél föður sins. Um tvítugt fjárfesti hún í Canon A1. Árið 1985 fór hún á námskeið í Englandi í ljósmyndun og framköllun og í framhaldi af því keypti hún sér framköllunarbúnað fyrir eigið myrkraherbergi.
Eftir nokkuð langt hlé frá ljósmynduninni keypti hún sér Canon EOS 30D og kviknaði áhuginn þá að nýju fyrir alvöru og í byrjun árs 2011 fjárfesti hún í Canon EOS 60 D.
Kaja hefur selt ljósmyndir víða um heim bæði til fyrirtækja og einstaklinga í gegnum ljósmyndasíðuna Flickr og Getty Images.
Hún hefur tekið þátt í einni samsýningu í Reykjavík sem haldin var til styrktar góðgerðarsamtökum.